Um Félags- og skólaþjónustuna
Byggðasamlag um félagsþjónustu í Rangárvalla- og Vestur Skaftafellssýslu tók til starfa árið 2003. Að byggðasamlaginu standa Ásahreppur, Rangárþing ytra, Rangárþing eystra, Mýrdals-hreppur og Skaftárhreppur, en sá síðastnefndi gekk að fullu í samlagið um áramótin 2005-2006.
Stofnsamþykktum byggðasamlagsins var breytt á aukaaðalfundi í ágúst 2013. Um áramótin 2013 – 2014 bættist lögbundin sérfræðiþjónusta sveitarfélaga við leik- og grunnskóla við starfsemina í kjölfar niðurlagningar Skólaskrifstofu Suðurlands sem haft hafði sérfræðiþjónustu á svæðinu með höndum frá árinu 1996.
Byggðasamlagið skiptist nú í tvær sjálfstæðar deildir undir einni stjórn, félagsþjónustudeild (sjá hnapp hér til hliðar) og skólaþjónustudeild (sjá hnapp hér til hliðar) og heitir Félags – og skólaþjónustu Rangárvalla – og Vestur-Skaftafellssýslu bs.
Í stjórn byggðasamlagsins sitja 5 fulltrúar, einn frá hverju sveitarfélagi sem aðild á að því.
Félagsþjónustan er til húsa að Suðurlandsvegi 1-3 á Hellu, sími 487-8125, en skólaþjónustan að Ormsvelli 1 á Hvolsvelli, sími 487-8107.
Nánari upplýsingar um hvora deild fyrir sig ef ýtt er á hnappa hér til hliðar og að ofan.